Fatahönnuðurinn Victoria Beckham er sögð allt annað en sátt með vinskap eiginmanns síns við yfirstéttapíuna Lady Mary Charteris. Charteris er þekkt fyrir villt líferni og hefur David verið að eyða tíma með henni á meðan eiginkona hans vinnur.
Lady Mary Charteris sem er af yfirstéttarættum og starfar sem fyrirsæta og plötusnúður var kynnt fyrir David á tónlistarhátíðinni Glastonbury í sumar. The Sun greinir frá því að síðan þá hafa þau djammað mikið saman. Victoria telur að Charteris hafi slæm áhrif á eiginmann sinn.
Hin þrítuga Charteris er gift tónlistarmanninum Robbie Furze. Hún viðurkenndi að hún hafði verið rúmföst í nokkra daga eftir að hafa tekið of vel á því í fimmtugsafmæli tónlistarmannsins Noel Gallagher á þessu ári.