Hugh Hefner stofnandi tímaritsins Playboy prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs tímaritsins. Þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður prýðir forsíðuna einn síns líðs en samkæmt People hafa karlmenn aðeins birst á forsíðunni 10 sinnum áður.
Hugh Hefner lést í september og var svarthvít mynd af Hefner síðan árið 1965 valin sem forsíðumynd en þá var hann 39 ára gamall. Hefner dó aðeins tveimur dögum áður en að blaðið átti að fara í prentun.
Eins og sést á myndinni fyrir neðan er um að ræða hálfgerða andlitsmynd. Hefner er kæddur í þykka peysu en það hafa örugglega fáar konur verið svo vel klæddar á forsíðu Playboy.