Söngkonan Lana Del Rey er sögð hafa samið textann við lagið Cola frá 2012 um framleiðandann Harvey Weinstein. Fjölmargar konur hafa stigið fram og sagt frá kynferðislegri áreitni og ofbeldi af hans hálfu.
Sjálf hefur Del Rey ekki opnað sig um samskipti sín við framleiðandann en heimildarmaður Page Six segir að Del Rey hafi samið textann við lagið Cola í kaldhæðni. Í textanum segist Del Rey meðal annars vera hrifin af eldri mönnum.
„Harvey’s in the sky with diamonds and he’s making me crazy. All he wants to do is party with his pretty baby,“ svona átti hluti af textanum að hljóma. Weinstein mun hafa heyrt af því og brjálast og var Harvey skipt út fyrir „he“ eða hann.
Del Rey samdi seinna lagið, „Big Eyes“, fyrir kvikmynd sem Weinstein framleiddi árið 2014.