Söngkonan Kelly Clarkson viðurkenndi í viðtali við Attitude að hún hefði íhugað að fremja sjálfsmorð þegar hún var neydd til að grenna sig í byrjun ferilsins.
Clarkson varð ein vinsælasta söngkona heims eftir að hún vann American Idol árið 2002. Hún segir erfitt að horfa til baka á þann tíma þar sem hún var að glíma við þyngdina. Clarkson hefur viðurkennt að hafa verið mjög óhamingjusöm á þessum tíma þar sem hún var of grönn.
„Ég var mjög grönn, mig langaði að drepa mig. Ég var vansæl, að utan og innan, í fjögur ár af lífi mínu. Öllum var sama vegna þess að fagurfræðilega er þetta rétt,“ sagði Clarkson í viðtalinu en hún hélt að eina leiðin út úr þessu væri að hætta að syngja.
Clarkson hefur jafnað sig í dag og hefur meðal annars greint frá því að hún hafi ekki áhyggjur af þyngd sinni.