Scandal-stjarna stígur fram

Tony Goldwyn er þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Scandal.
Tony Goldwyn er þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Scandal. mbl.is/AFP

Scandal-leikarinn Tony Goldwyn sagði frá því að um helgina að hann hefði fengið sinn skerf af kynferðislegri áreitni í Hollywood. Saga Goldwyn kom eftir að óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'o opnaði sig um sína reynslu af framleiðandanum Harvey Weinstein. 

„Þetta kom fyrir mig þegar ég var bókstaflega á aldur við Lupitu á síðasta árinu mínu í leiklistarskóla,“ sagði Goldwyn samkvæmt Page Six. Goldwyn lýsir því að karlmaður hafi verið gerandinn í hans tilviki. „Þetta var ekki jafn langt og hræðilegt og það sem Lupita gekk í gegnum en þetta var sami hluturinn,“ sagði Goldwyn um atvikið. 

„Ég skildi ekki hvað var í gangi, hvað var að gerast, ég hélt þetta væri mér að kenna. Ég hélt ég væri að miskilja aðstæðurnar,“ sagði Goldwyn og sagði það hafa tekið sig nokkur ár að komast yfir þetta. 

Tony Goldwyn.
Tony Goldwyn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant