Disney hefur gert samning við handritshöfund og leikstjóra Stjörnustríðsmyndarinnar The Last Jedi, Rian Johnson, um að þróa nýjan Stjörnustríðsþríleik. Einnig eru sjónvarpsþættir á teikniborðinu.
Variety greinir frá því að áætlað sé að frumsýna sjónvarpsþættina árið 2019 á efnisveitu framleiðandans. Sjónvarpsþættir upp úr Skrímsli hf. og High School Musical eru einnig á áætluninni.
Kathleen Kennedy hjá Lucasfilm, sem kemur að framleiðslu Stjörnustríðsmyndanna, talar vel um samstarfið við Johnson við gerð The Last Jedi og segir að hann muni gera frábæra hluti í nýja þríleiknum.
Gömlu Stjörnustríðspersónurnar munu ekki vera í aðalhlutverkum í nýja þríleiknum heldur munu nýjar persónur skjóta upp kollinum.