Brúðkaupið kostar 100 milljónir

Alexis Ohanian og Serena Williams eru að fara að gifta …
Alexis Ohanian og Serena Williams eru að fara að gifta sig. mbl.is/AFP

Tennisstjarnan Serena Williams og Reddit-stofnandinn Alexis Ohanian eru á leið upp að altarinu. Mikil leynd hvílir yfir brúðkaupinu en erlendir fjölmiðlar hafa það eftir heimildamönnum sínum að brúðkaupið fari fram í samtímalistamiðstöð í New Orleans. 

Daily Mail greinir frá því að ekkert verður til sparað og verðandi hjónin hafi ráðið þá allra bestu en brúðkaupið er talið kosta eina milljón dollara eða rúmar 100 milljónir íslenskra króna. 

Gestalistinn er ekki amalegur en von er á tónlistarfólkinu Beyoncé og Jay-Z, Ciöru og Kelly Rowland, raunveruleikastjörnunni Kris Jenner og leikkonunni Evu Longoriu. Einnig er talið líklegt að leikkonan Meghan Markle, kærasta Harry Bretaprins, verði á svæðinu enda góð vinkona Williams. 

Svo mikil leynd hvílir yfir brúðkaupinu að gestirnir vita ekki hvar það fer fram. Bíll sækir gestina á hótelin og ferjar þá í brúðkaupið. Einnig mega gestirnir ekki taka myndir enda er Anna Wintour, ritstýra Vogue, búin að tryggja sér einkarétt á brúðkaupsmyndunum. 

11 vikna gömul dóttir Williams og Ohanian verður að sjálfsögðu á svæðinu. Barnfóstra mun þó sjá um að brúðhjónin geti skemmt sér. 

Búist er við Beyonce og Jay Z í brúðkaupið.
Búist er við Beyonce og Jay Z í brúðkaupið. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler