Ljóstraði óvart upp kyni barnsins

Kim Kardashian á von á stúlku.
Kim Kardashian á von á stúlku. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og tónlistarmaðurinn Kanye West eiga von á sínu þriðja barni en nú með hjálp staðgöngumóður. Í spjallþætti Ellenar DeGeneres ljóstraði hún upp kyni barnsins. 

Kardashian var að segja frá steypiboði sínu sem hafi verið haldið að hluta til til þess að elsta barn hennar, North West, áttaði sig á því hvað væri í gangi. Kardashian lýsti því hvernig dóttir hennar hafi spurt hana hvort hún mætti leika með dótið sem Kardashian fékk að gjöf í boðinu þar sem litla systir væri enn ekki komin. 

DeGeneres benti henni þá á að hún hafði sagt frá kyni barnsins og viðurkenndi þá raunveruleikastjarnan að þau ættu von á stelpu. North West er ánægð með það en fyrir á hún einn bróður, Saint West. 

Kim Kardashian og Kanye West ásamt börnum sínum Saint og …
Kim Kardashian og Kanye West ásamt börnum sínum Saint og North. Twitter/Kanye West
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant