Í verri málum en kona í slitnum G-streng

Adriana Lima á Victoria's Secret-tískusýningunni árið 2013. Hún er sögð …
Adriana Lima á Victoria's Secret-tískusýningunni árið 2013. Hún er sögð eiga erfitt með að fá vegabréfsáritun. mbl.is/AFP

Það er ýmislegt sem hefur komið upp á í aðdraganda tískusýningar undirfatarisana Victoria's Secret. Ein vinsælasta fyrirsæta heims, Gigi Haidid, hefur hætt við þátttöku en einnig þurfti að finna staðgengil fyrir söngkonuna Katy Perry. 

Undirfatasýningin fer fram í Sjanghaí í Kína á mánudaginn en eitthvað virðist staðsetningin vera óhentug fyrir stórstjörnurnar. Page Six greinir frá því að söngkonan Katy Perry fái ekki vegabréfsáritun til þess að komast inn í landið. Ástæðan mun vera sú að Perry klæddist kjól með sólblómum á tónleikum sínum í Taívan árið 2015. Sólblómið var tákn Sunflower Student Movement, hreyfingar sem mótmælti viðskiptasamningi Kína árið 2014. Hún veifaði einnig fána Taívan á tónleikunum. Harry Styles er sagður hlaupa í skarðið fyrir Perry. 

Katy Perry er sögð hafa neyðst til að hætta við …
Katy Perry er sögð hafa neyðst til að hætta við að syngja á tískusýningunni. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Gigi Hadid hefur þurft að hætta við þátttöku í sýningunni. Er ástæðan talin vera sú að í febrúar birtist myndband af henni á Instagram með kex sem líktist buddah og hermdi hún eftir honum með því að ranghvolfa í sér augunum. Fyrirsætan fékk mikla gagnrýni í kjölfarið. Þegar tilkynnt var um þátttöku hennar voru kínverskir notendur á samfélagsmiðlum ekki ánægðir. 

Fleiri fyrirsætur eru sagðar hafa lent í vandræðum eins og Adriana Lima og enn aðrar hafa ekki fengið vegabréfsáritun. 

Gigi Hadid verður ekki með í Kína á mánudaginn.
Gigi Hadid verður ekki með í Kína á mánudaginn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson