Prjónaóðir leikarar

Leikkonan Julia Roberts prjónar mikið.
Leikkonan Julia Roberts prjónar mikið. mbl.is/AFP

Leikarinn Owen Wilson vildi meina í nýlegu viðtali að leikkonan Julia Roberts fengi ekki háa einkunn á götunni fyrir áhugamál sitt en leikkonan er mikil prjónakona. Roberts er ekki eina stjarnan sem nýtir tímann í handavinnu á tökustað. 

Ryan Gosling viðurkenndi árið 2013 að hann elskaði að prjóna. Leikarinn segir handavinnuna vera róandi. Ef hann ætti að skipuleggja hinn fullkomna dag væri prjón á dagskrá. 

Ryan Gosling.
Ryan Gosling. mbl.is/AFP

Aðþrengda eiginkonan Felicity Huffman þykir ekki leiðinlegt að grípa í prjónana. 

Felicity Huffman.
Felicity Huffman. mbl.is/AFP

Catherine Zeta-Jones prjónar mikið, handavinnuhæfileikarnir eru í blóðinu en móðir hennar var saumakona. Zeta-Jones prjónaði einu sinni ponsjó fyrir alla í fjölskyldunni. 

Michael Douglas ásamt konu sinni, Catherine Zeta-Jones.
Michael Douglas ásamt konu sinni, Catherine Zeta-Jones. mbl.is/AFP

Leikkonan Audrey Hepburn prjónaði meðan á tökum stóð á Breakfast at Tiffany's. 

Audrey Hepburn.
Audrey Hepburn.

Sara Jessica Parker les, horfir á sjónvarp og prjónar til þess að slaka á, það gengur þó ekki vel hjá henni að reyna að prjóna og horfa á sjónvarpið á sama tíma. 

Sarah Jessica Parker.
Sarah Jessica Parker. mbl.is/AFP

Sést hefur til Umu Thurman með prjónana á lofti. 

Uma Thurman.
Uma Thurman. mbl.is/AFP

Russel Crowe er einn af þeim karlmönnum í Hollywood sem prjóna. 

Russell Crowe.
Russell Crowe. mbl.is/AFP

Amanda Seyfried prjónar mikið og hefur meðal annars sést til hennar prjóna úti þegar hún viðraði hundinn sinn í garði í New York. 

Amanda Seyfried.
Amanda Seyfried. mbl.is/AFP

Kristen Stewart er prjónakona og prjónaði meðal annars á tökustað Twilight-myndanna. 

Kristen Stewart.
Kristen Stewart. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson