Ása Helga valin besti leikstjórinn

Þorvaldur Davíð Kristjánsson tók við verðlaununum fyrir hönd Ásu.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson tók við verðlaununum fyrir hönd Ásu. Ljósmynd/Aðsend

Ása Helga Hjörleifsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndarinnar Svanurinn, hlaut á föstudag verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíðinni í Kolkata á Indlandi.

Svanurinn fjallar um níu ára stúlku sem send er í sveit og lendir þar í aðstæðum sem hún á í basli við að kljást við, þó að hún sé sjálfstæð og hugmyndarík. Gríma Valsdóttir leikur stúlkuna en önnur aðalhlutverk leika Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.

Svanurinn, sem byggð er á samnefndri verðlaunaskáldsögu eftir Guðberg Bergsson, var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í september og hefur myndin hlotið góðar viðtökur og dóma.

Birgitta Björnsdóttir og Hlín Jóhannesdóttir eru aðalframleiðendur Svansins en myndin er þriggja landa samframleiðsla milli Íslands, Þýskalands og Eistlands. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í byrjun janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant