Hefur engan áhuga á stefnumótum

Jennifer Garner er einhleyp um þessar mundir.
Jennifer Garner er einhleyp um þessar mundir. mbl.is/AFP

Leikkonan Jennifer Garner er einhleyp þessa stundina og svo virðist sem hún hafi lítinn hug á því að breyta því. Í nýju viðtali segist hún ekki hafa áhuga á því að fara á stefnumót. 

Garner og Ben Affleck sóttu um skilnað í vor en þau skildu að borði og sæng fyrir tveimur árum. Þrátt fyrir það hefur Garner enn ekki farið á stefnumót og ætlar sér ekki að gera það. „Nei, takk,“ segist Garner segja þegar fólk reynir að koma henni saman við einhvern. 

„Ég hefði ekki valið þetta líf fyrir sjálfa mig og börnin mín. Ég hefði ekki valið það að vera einhleyp eða að vera í þessari stöðu,“ sagði Garner. 

Garner og Affleck eiga þrjú börn saman og segir leikkonan að þau séu enn góðir vinir. Þau ætli til dæmis að halda þakkargjörðarhátíðina saman. 

Ben Affleck.
Ben Affleck. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant