Leikkonan Meghan Markle virðist vera flytja til London að minnsta kosti er verið að tæma íbúð hennar í Toronto. Hingað til hefur hún verið í fjarsambandi við Harry Bretaprins og oft flogið á milli Kanada og Englands.
E! Online greinir frá því að flutningamenn séu að pakka niður dóti hennar og á meðan sumt færi í geymslu ætti að flytja annað til Lundúna. Á meðan á öllu þessu stendur er Markle í Lundúnum en hún sást meðal annars í jólagjafaleiðangri um daginn.
Leikkonan er nýbúin að klára tökur á sjöundu þáttaröð af lögfræðidramanu Suits í Toronto en þáttaröðin er sögð vera sú síðasta sem Markle tekur þátt í þó svo að það hafi ekki fengist staðfest.