Leikkonan Gwyneth Paltrow er sögð vera trúlofuð kærasta sínum til þriggja ára, Brad Falchuk. Leikkonan hefur sést skarta gullhring en er aðeins nýbyrjuð að ganga með hann opinberlega.
Þrátt fyrir að leikkonan sé nýbyrjuð að ganga með hringinn heldur heimildamaður ET því fram að skötuhjúin séu búin að vera trúlofuð í heilt ár en hafi farið leynt með það.
Paltrow kynntist Falchuk þegar hún tók að sér gestahlutverk í sjónvarpsþáttunum Glee en Falchuk var einn af framleiðendum þáttanna auk þess sem hann skrifaði nokkra þeirra.
Leikkonan giftist Chris Martin söngvara Coldplay árið 2003 og á með honum þrjú börn. Árið 2014 tilkynntu þau skilnað sinn.
A post shared by Gwyneth Paltrow (@gwynethpaltrow) on Mar 1, 2017 at 5:55pm PST