Fór á stefnumót til þess að hefna sín

Katy Perry gleymir ekki svo auðveldlega.
Katy Perry gleymir ekki svo auðveldlega. mbl.is/AFP

Söngkonan Katy Perry og tónlistarmaðurinn The Weeknd fóru út að borða í Hollywood á dögunum. Perry er sögð hafa farið á stefnumótið til þess að hefna sína á söngkonunni Selenu Gomez. 

Heimildamenn The Sun segja að Perry hafi viljað sýna Gomez í tvo heimana en Gomez hætti með The Weeknd fyrir nokkrum vikum. Ástæðan fyrir þessu er sú að Gomez fór út að borða með leikaranum Orlondo Bloom í maí í fyrra en þá voru þau Bloom og Perry enn saman.

„Katy er með gott minni og hún gleymir aldrei,“ sagði heimildamaður. „Hún kunni ekki við það að allir héldu að Orlondo hefði haldið framhjá henni með Selenu í Vegas á þessum tíma, þrátt fyrir að Orlondo og Selena sögðu að þau væru bara vinir þá var þetta vandræðalegt fyrir hana.“

Það er spurning hvort Gomez kippir sér eitthvað upp við stefnumót Perry og The Weeknd enda er Gomez búin að taka aftur við Justin Bieber. 

Selena Gomez og The Weeknd hættu saman fyrir nokkrum vikum.
Selena Gomez og The Weeknd hættu saman fyrir nokkrum vikum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson