Angelina Jolie hefur verið að færa sig frá því að vera fyrir framan myndavélina í það að stjórna fyrir aftan hana. Hún segir ekki margt í eðli sínu sem passi leikara.
Jolie opnaði sig við Hollywood Reporter þar sem hún viðurkennir að viðhorf hennar til leiklistarinnar hafi breyst eftir að móðir hennar lést árið 2007. Hún segist hafa viljað hjálpa mömmu sinni að borga reikningana þegar hún byrjaði að leika. Leikurinn hafi verið vinna en skapandi vinna þar sem hún hafi fengið að kanna mismunandi tíma og fólk.
Faðir Jolie er einnig frægur leikari, Jon Voight. Þrátt fyrir það kaus hún að notast við Jolienafnið í stað Voight þar sem hún vildi sanna sig á eigin verðleikum.