Plummer tilnefndur fyrir hlutverk Spacey

Kevin Spacey var klipptur út úr myndinni All The Money …
Kevin Spacey var klipptur út úr myndinni All The Money in the World og Christopher Plummer kom í staðinn. mbl.is/AFP

Tilnefningar til Golden Globe-verlaunanna voru tilkynntar í dag. Verðlaunaleikarinn Kevin Spacey fær hvorki tilnefningu fyrir hlutverk sitt í House of Cards né fyrir kvikmyndaleik. Leikarinn Chrisopher Plummer fær hins vegar tilnefningu fyrir bestan leik í aukahlutverki. 

Plummer er tilnefndur fyrir að leika J. Paul Getty í kvikmyndinni All The Money in the World en Kevin Spacey lék Getty upprunalega. Aðeins eru nokkrar vikur síðan að Plummer var fenginn til að leika Getty eftir að Spacey var klipptur út þegar upp komst um kynferðislegt ofbeldi Spacey. 

Plummer sem sló í gegn í kvikmyndinni Söngvaseiði fyrir meira en hálfri öld verður 88 ára í vikunni og á greinilega enn mikið inni. Á dögunum sagðist hann aldrei ætla hætta leika og vildi helst af öllu deyja á sviði. 

Hér má sjá tilnefningar til Golden Glope. 

Christopher Plummer.
Christopher Plummer. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson