Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað undir útgáfusamning við forlag í Rússlandi um útgáfu allra fjögurra bóka sinna úr barnabókaflokknum „Þín eigin“-bækur á rússnesku.
Í október var Ævari boðið til Rússlands á bókamessu þar sem hann kynnti bækur sínar, gerði vísindatilraunir með krökkunum, las upp úr verkum sínum og hitti rússneska útgefendur.
Í kjölfar heimsóknarinnar hefur Ævar nú skrifað undir samning við Meshcheryakov Publishing House sem þykir eitt það virtasta í sínum geira í Rússlandi, að því er segir í tilkynningu frá Forlaginu.
Bækurnar sem verða nú fáanlegar á rússnesku eru: Þín eigin þjóðsaga, Þín eigin goðsaga, Þín eigin hrollvekja og Þitt eigið ævintýri.