Getur ekki flúið sinn innri mann

Guðmundur Pétursson, Eyþór Gunnarsson, Einar Scheving, Ari Bragi Kárason og …
Guðmundur Pétursson, Eyþór Gunnarsson, Einar Scheving, Ari Bragi Kárason og Jóel Pálsson skipa djasskvintettinn Annes. Ljósmynd/Spessi

„Við köstuðum á milli okkar titlum sem rímuðu við nafn hljómsveitarinnar og oftast komu upp einhverjar veðurlýsingar,“ segir Einar Scheving trommuleikari um plötuna Frost sem djasskvintettinn Annes hefur sent frá sér.

Frost er önnur plata Anness og inniheldur sjö lög eftir liðsmenn kvintettsins, sem skipa auk Einars þeir Ari Bragi Kárason á trompet, Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Guðmundur Pétursson á gítar og Jóel Pálsson á saxófón. Í viðtali við Morgunblaðið í maí minnti Jóel einmitt á að Annes er vindasamur útnári og sagði nafnið lýsandi fyrir það sem sveitin væri að gera á jaðrinum.

„Það er alltaf mjög erfitt að ná þessum mannskap saman. En þegar við komum saman erum við mjög afkastamiklir,“ segir Einar og rifjar upp að kvintettinn hafi spilað megnið af efni plötunnar á þarsíðustu Jazzhátíð og þannig hafi menn verið búnir að kynnast lögunum áður en farið var í hljóðver. „Tónlistin sem við spilum er tiltölulega krefjandi og því verðum við að æfa hana áður en við förum í upptökur. Þetta er skorpuband sem gerir hlutina oft á síðustu stundu, en þá eru bara langar æfingar í staðinn.“

Gamall og traustur vinskapur

Hjálpar adrenalínið sem myndast við að vinna undir tímapressu?

„Ætli það ekki. Einn vinur minn í tónlistarbransanum sagði mér einmitt um daginn að hann væri búinn að átta sig á því að hann væri háður adrenalíni sem framkallaðist þegar hann gerði allt á síðustu stundu.“

Þið Annes-félagar hafið þekkst lengi og unnið mikið saman sem hlýtur að hjálpa í samhljómnum?

„Þetta er gamall og traustur vinskapur. Við Jóel spiluðum okkar fyrsta gigg í Hagaskóla þegar við vorum 13 ára. Ætli ég hafi ekki verið 16 ára þegar ég spilaði mitt fyrsta gigg með Eyþóri og skömmu síðar með Gumma. Ari er aðeins yngri en við en hann er svo sprettharður að hann er löngu búinn að ná okkur.“

Er harður slagur milli ykkar um hvaða lög rata inn á plötur Anness?

„Í raun má segja að slagurinn snúist frekar um að menn vilja ekki að sín lög fari inn á plötur.“

Þetta verður þú að útskýra betur.

„Við erum ýmist svo hógværir og/eða með fullkomnunaráráttu þannig að við erum allir tilbúnir að fórna okkar lögum fyrir lög annarra. Við erum hins vegar allir gríðarlega ánægðir með þessa plötu. Bandið hefur þróast og er mun betur samspilað en á síðustu plötu. Auk þess eru lögin sterkari,“ segir Einar sem er höfundur tveggja laga á plötunni, þ.e. „The Obvious“ og „Magnesia“.

Þín höfundareinkenni koma skýrt fram í þessum tveimur lögum og minna hvað stíl og stemningu varðar á plöturnar Cycles og Intervals sem þú hefur áður sent frá þér.

„Lögin mín eru kannski tvö rólegustu lögin á plötunni. Og plöturnar tvær sem þú nefnir eru tiltölulega rólegar. Margir furða sig einmitt á því að slagverksleikari skuli semja svona rólega tónlist, en maður getur greinilega ekki hrist þetta af sér eða flúið sinn innri mann.“

Forðast ekki hið augljósa

Er langt síðan þú samdir þau?

„Já, þetta eru í raun bæði skúffulög. „Magnesia“ er eitt þessara laga sem maður er nógu heppinn að fanga. Upprunalega kom „The Obvious“ til mín í formi verkefnis þegar ég var í námi við University of Miami fyrir um 15 árum. Við vorum beðin að semja lag sem byggðist á ákveðnum hljómi sem ég vann síðan út frá. Lagið lá ofan í skúffu þar til ég dró það fram og fór að útsetja það fyrir Annes.“

Hvernig komu titlarnir til þín?

„Einhverjir tónlistarmenn eiga það til að vera með valkvíða þegar kemur að lagaheitum – og þar var ég engin undantekning. Á einhverjum tímapunkti ákvað ég hins vegar að nota ávallt það fyrsta sem mér dytti í hug, því annars gæti ég endalaust velt hinum fullkomna titli fyrir mér. Titillinn „The Obvious“ er sóttur í ævisögu Keiths Jarrett þar sem höfundur bókarinnar segir um Jarrett að hann sé aldrei hræddur við hið augljósa. Keith Jarrett er einn af mínum uppáhaldstónlistarmönnum og mér finnst fallegt þegar menn eru ekki að reyna að forðast hið augljósa. Ef lag kallar á eitthvað einfalt þá skrifar maður það bara þannig í staðinn fyrir að reyna að finna upp hjólið. Við lifum tíma þar sem hlutirnir þurfa helst að vera hipp og kúl. Þetta á ekki bara við um djasstónlist heldur alla list. En um leið og við förum að nálgast list út frá slíkum mælistikum er afar stutt í tilgerðina.“

Hvernig semur þú lögin þín?

„Maður er náttúrlega þræll tónlistarinnar og því eru alltaf einhverjar melódíur eða hljómar eða rytmi í gangi í hausnum á manni. Þegar ég er orðinn nógu þreyttur á einhverju í kollinum á mér hendi ég því á blað, sest við píanóið og kem því frá mér.“

Þú nefndir áðan að lögin tvö hefðu legið ofan í skúffu í nokkur ár. Áttu mörg lög í þeirri skúffu?

„Já, ég á alveg slatta. Það er alltaf gaman að semja eitthvað nýtt, en það er líka gaman að grafa upp eitthvað sem maður hefur ekki fundið farveg fyrir áður og endurhugsa lagið og útsetja fyrir tiltekinn hóp.“

Hvað er fram undan hjá Annesi?

„Við ætlum að spýta í lófana og spila sem mest saman á nýju ári. Við stefnum að því að setja Annes meira í forgang, hætta að vera tarnaband og spila frekar saman allan ársins hring. Vonandi gengur það eftir.“

Er það áramótaheitið í ár?

„Já, að minnsta kosti innan bandsins.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson