Ólétt á Victoria's Secret-tískusýningunni

Candice Swanepoel var ólétt á tískusýningu Victoria's Secret í nóvember.
Candice Swanepoel var ólétt á tískusýningu Victoria's Secret í nóvember. mbl.is/AFP

Suður-afr­íska fyr­ir­sæt­an Candice Swanepoel sýndi á undirfatatískusýningu Victoria's Secret í lok nóvember. Fáir vissu hins vegar að Swanepoel var ólétt á nærfötunum. 

Nú, tæpum mánuði eftir tískusýninguna, er Swanepoel búin að tilkynna að hún sé ólétt. Miðað við myndina sem hún birti á Instagram var hún komin einhverja mánuði á leið á tískusýningunni. 

Fyrirsætan, sem er 29 ára gömul, gekk tískupallinn í tíunda skipti í Sjanghæ í nóvember og þeir voru ekki margir sem tóku eftir óléttukúlunni. Þvert á móti dásamaði fólk það í hversu góðu formi hún var þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir ári. 

🤰🏼Christmas came early..👼🏼#2

A post shared by Candice Swanepoel (@angelcandices) on Dec 15, 2017 at 3:47pm PST

Það sést móta fyrir nettri óléttukúlu.
Það sést móta fyrir nettri óléttukúlu. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson