Jólagóðgerðarvikan hjá Creditinfo felst í því að deildir keppa góðlátlega sín á milli með það að markmiði að safna sem mestum pening til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni styrktu starfsmenn félagsins Hollvini Grensás. Margt er gert svo sem jólaföndur, hádegistónleikar, hádegis- og morgunmatur að hætti starfsmanna, jólabingó o.fl. Þetta er í þriðja skiptið sem starfsfólk Creditinfo heldur slíka góðgerðarviku og hefur hún fest sig í sessi sem hefð hjá Creditinfo.
Í fyrra styrktu starfsmenn Creditinfo Duchenne-samtökin á Íslandi um tæplega eina og hálfa milljón.