Fjöruverðlaunin afhent í 12. sinn

Kristín Eiríksdóttir hlýtur Fjöruverðlaunin í ár fyrir skáldsögu sína Elín, …
Kristín Eiríksdóttir hlýtur Fjöruverðlaunin í ár fyrir skáldsögu sína Elín, ýmislegt. Haraldur Jónasson / Hari

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent í tólfta sinn í Höfða í dag. Í flokki fagurbókmennta var valin best skáldsaga Kristínar Eiríksdóttur, Elín, ýmislegt. Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur var valin sú besta í flokki barna- og unglingabókmennta, og var bók Unnar Jökulsdóttur, Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk, valin sú besta í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis.

Auk skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur, Elín, ýmislegt, voru ljóðabækurnar Flórída eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Slitförin eftir Fríðu Ísberg tilnefndar í flokki fagurbókmennta. Í rökstuðningi dómnefndar segir um verðlaunabókina: „Á einkar næman og áhrifaríkan hátt er hér fjallað um skynjun manneskjunnar á veruleikanum, flóttaleiðir hugans, einsemd, hið gleymda og falda. Frásagnartæknin er í senn úthugsuð og áreynslulaus. Elín, ýmislegt […] er gríðarlega vel skrifuð skáldsaga sem lifir áfram með lesandanum.“

Hvatning og heiður

Kristín segist afar þakklát fyrir verðlaunin og segir þau mikilvæg. „Um þrjátíu prósent af útgefnum höfundum nú eru konur og það er ekki vegna þess að konur skrifi minna eða hafi minna að segja. Það er ennþá þörf fyrir þessi verðlaun; ég er upp með mér og glöð yfir að fá þessa viðurkenningu, úr þessari átt,“ segir Kristín.

Aðspurð segir hún að á veraldlegu plani séu viðtökurnar mjög mikilvægar. „Þær gefa mér tilvistarleyfi og það er hvatning í því. Viðtökurnar eru ekki forsenda fyrir verkinu og það er ekki hægt að keppa í listum eins og listamenn vita. En þetta er hvatning og heiður, og gaman. Á veraldlegu plani er þetta frábært.“

Unnur Jökulsdóttir hlýtur Fjöruverðlaunin fyrir fræðibók sína Undur Mývatns – …
Unnur Jökulsdóttir hlýtur Fjöruverðlaunin fyrir fræðibók sína Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk. mbl.is/Ásdís

Þykir vænt um Fjöruverðlaunin

Í rökstuðningi dómnefndar um verðlaunabók Unnar Jökulsdóttur, Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk, segir: „Í bókinni skynjar lesandinn töfra og fegurð Mývatns. Unnur ber djúpa virðingu fyrir náttúrunni og lýsir henni af ástríðu og hrifningu. […] Bókin Undur Mývatns er dýrmæt perla rétt eins og vatnið sjálft.“

„Ég var mjög sátt og ánægð með tilnefninguna en það er ennþá skemmtilegra að fá verðlaunin. Ekki síst þegar ég var í svona góðu kompaníi,“ segir Unnur en auk bókar hennar voru tilnefndar Íslenska lopapeysan: Uppruni, saga og hönnun, eftir Ásdísi Jóelsdóttur, og Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir, eftir Steinuni Kristjánsdóttur.
Unnur hefur dvalið við Mývatn og starfað á sumrin síðan 2005.

Unnur segir að verðlaunin hvetji sig til frekari verka. „Mér finnst mjög vænt um Fjöruverðlaunin. Við vitum að það þarf að berjast fyrir því að konur standi jafnfætis við karla í samfélaginu, ekki bara hvað varðar laun og réttindi, heldur líka til dæmis með verðlaun og athygli. Það var ekki vanþörf á því að stofna þessi verðlaun og mér finnst einstaklega mikill heiður að fá þau,“ segir hún.

Kristín Helga Gunnarsdóttir fær Fjöruverðlaunin fyrir unglingaskáldsöguna Vertu ósýnilegur, flóttasaga …
Kristín Helga Gunnarsdóttir fær Fjöruverðlaunin fyrir unglingaskáldsöguna Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels.

Þurfa ennþá sérstakt kastljós

Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, sem hreppti Fjöruverðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta, segir frá Ishmael, 15 ára dreng á flótta frá Sýrlandi, og Salí, sýrlenskri stúlku sem býr í Kópavogi. Í umsögn dómnefndar segir að sjónarhornið flakki „milli þeirra tveggja og skapast þannig spenna sem heldur lesandanum föngnum. Sagan fjallar öðrum þræði um hörmungar en fyrst og fremst um mennsku og mannhelgi […] Bókin er einstaklega vel byggð, persónusköpun trúverðug og afar raunsæ og fjallar um málefni sem brennur á okkur öllum.“

„Það er dásamlegt að fá svona viðurkenningu og kastljós á verk sem fjallar um þessa stóru hluti. Það skiptir miklu máli,“ segir Kristín Helga og bætir við að málefni flóttamanna, viðfangsefni bókarinnar, hafi lengi brunnið á sér.

„Við heyrum þessar fréttir alveg frá því að stríð brýst út en verðum ónæm fyrir tungutakinu, fréttaflutningurinn verður einsleitur, orðfærið fjarlægir mann atburðunum. Það leitaði á mig að fá svör fyrir sjálfa mig við allskonar stórum spurningum og þá fór ég að velta fyrir mér öllu þessu unga fólki sem er að skríða hratt upp á fullorðinsárin og er með þennan veruleika í fanginu: styrjaldir á framandi slóðum sem samt eru svo nálægt okkur.“

Kristín Helga segir mikilvægt að Fjöruverðlaunin séu kvennaverðlaun. „Ég var áður efins um að kyngreina bókmenntirnar með þessum hætti en eftir því sem tíminn líður og ég öðlast meiri þroska, þá sé ég að verðlaun sem þessi eru nauðsynleg. Konur þurfa ennþá sérstakt kastljós til að rödd þeirra sé sterk og heyrist,“ segir Kristín Helga.

Ítarlegri viðtöl við vinningshafana þrjá verða birt í Morgunblaðinu á morgun, þriðjudag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson