Jóhann Ólafsson
skrifar frá Tel Aviv
„Fáninn er frá 1999 þegar Selma hafnaði í öðru sæti hér í Ísrael,“ segir Englendingurinn Peter Fenner, sem hefur fylgt íslenska hópnum frá því Selma Björnsdóttir heillaði hann með laginu „All Out Of Luck“. Fenner tekur með sér íslenskan fána og allir íslensku flytjendurnir frá 1999 hafa áritað fánann.
Fenner útskýrir að hann hafi verið í samkvæmi hjá íslenska ræðismanninum í Jerúsalem fyrir 20 árum þar sem hann heillaðist af íslenska hópnum og fékk fánann að gjöf.
„Núna erum við hér, 20 árum síðar,“ segir Fenner. Hann hlær þegar blaðamaður spyr hvort ekki styttist í að fáninn fyllist.
„Það er mjög lítið pláss eftir!“ segir Fenner og bendir á örlítið horn sem enn á eftir að skrifa á.
„Ef við fáum fleiri hljómsveitir á næstu árum þá fyllist þetta hratt,“ segir Fenner sem á nokkur uppáhalds nöfn á fánanum:
„Ég hef alltaf elskað Pál Óskar,“ segir Fenner en nafn hans er á listanum þrátt fyrir að Páll hafi ekki tekið þátt í Eurovision síðan 1997.
„Eurobandið, Selma, Jóhanna Guðrún, Guðrún Gunnarsdóttir, Regína Ósk, Pollapönk. Þetta er allt saman frábært fólk,“ segir Fenner en liðsmenn Hatara árituðu fánann áður en þeir héldu af stað áleiðis í Expo-höllina þar sem úrslit Eurovision fara fram í kvöld.