Michael Jackson látinn

Poppgoðið Michael Jackson lést, fimmtugur að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall á heimili sínu þann 25. júní 2009

Janet Jackson með börnum Michael Jackson við opinbera minningarathöfn um hann.
Veröld/Fólk | mbl | 11.9 | 8:41

Janet forðast fréttir

Janet Jackson, systir söngvarans Michael Jackson, hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um skyndilegt fráfall hans í júní. Í viðtali við tímaritið Harper's Bazaar segist hún ekki hafa horft á fréttir frá fráfalli hans. Meira

Jackson greftraður
Veröld/Fólk | mbl | 4.9 | 7:36

Jackson greftraður í gullkistuMyndskeið

Bandaríska poppstjarnan Michael Jackson var jarðsettur í Los Angeles í nótt rúmum tveimur mánuðum eftir að hann lést. Um 200 manns voru viðstödd þegar Jackson var lagður til hinstu hvílu í gullsleginni kistu. Meira

Michael Jackson
Veröld/Fólk | mbl | 3.9 | 23:50

Jackson jarðsunginn í nótt

Staðfest hefur verið að poppsöngvarinn Michael Jackson verði jarðsunginn í nótt að viðstöddum ættingjum hans og nánustu vinum, rúmum tveimur mánuðum eftir að hann dó. Meira

Michael Jackson með móður sinni Katherine.
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 3.9 | 9:23

Jackson jarðsunginn í dag

Talið er að poppstjarnan Michael Jackson, sem lést þann 25. júní verði jarðsunginn við sólarlag í dag. Er athöfnin sögð eiga að fara fram frá Holly Terrace grafhýsinu í Forest Lawn kirkjugarðinum í Hollywood klukkan sjö að staðartíma og standa í 45 mínútur. Meira

Veröld/Fólk | mbl | 28.8 | 19:10

Lát Jacksons úrskurðað sem manndráp

Búið er að úrskurða lát Michael Jacksons sem manndráp af völdum of stórs skammts af deyfilyfjum. Meira

Vaxstytta af Michael Jackson á safni Madame Tussauds í Hollywood
Veröld/Fólk | mbl | 28.8 | 10:34

Lykilvitni enn ekki yfirheyrð

Greint hefur verið frá því að einungis þrír rannsóknarlögreglumenn vinni að rannsókn á láti poppstjörnunnar Michael Jackson í júní á þessu ári. Öll lykilvitni í málinu hafa ekki enn verið yfirheyrð. Meira

Michael Jackson, sem lést í júní, með móður sinni Katherine fyrir nokkrum árum.
Veröld/Fólk | mbl | 28.8 | 9:58

Sæði Jacksons til Bretlands

Staðhæft er í fjölmiðlum í Bretlandi að fjölskylda poppstjörnunnar Michael Jackson hafi ákveðið að flytja fryst sæði hans til Bretlands til að verja það gegn tilraunum óprúttinna aðila til að skapa nýja erfingja að auðæfum hans. Meira

Dr. Arnold Klein, læknir Jacksons.
Veröld/Fólk | mbl | 27.8 | 9:44

Rowe benti á Klein

Talið er að Debbie Rowe, fyrrum eiginkona poppstjörnunnar Michael Jackson, hafi bent lögreglu á hugsanlegan þátt húðsjúkdómalæknisins Arnold Klein í því að útvega honum lyfseðilsskyld lyf en Rowe var aðstoðarkona Klein er hún kynntist Jackson. Meira

Banvænn skammtur af propofol
Veröld/Fólk | mbl | 26.8 | 10:45

Murray talaði í 47 mínútur í símaMyndskeið

Fram kemur í gögnum, sem sögð eru komin frá lögreglu, að Dr. Conrad Murray, læknir poppstjörnunnar Michael Jackson, hafi hringt þrjú símtöl áður en hann bað öryggisvörð um að hringja í neyðarlínu eftir að Jackson hætti að anda þann 25 júní. Meira

Útför Jackson frestað
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 21.8 | 9:41

Elskhugi Jackson stígur framMyndskeið

Karlmaður sem segist hafa verið elskhugi tónlistarmannnsins Michaels Jackson er hann lést hefur nú stigið fram á sjónarsviðið. Hann segist vera niðurbrotinn eftir lát söngvarans en þeir hafi átt sína stuttu en rómantísku ástarsögu sem skyndilega var bundinn endir á með fráfalli Jacksons. Meira

Jackson jarðsettur á afmæli sínu
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 18.8 | 5:30

Fær loks hinstu hvíldMyndskeið

Að sögn föður Michael Jackson verður poppkóngurinn loksins grafinn laugardaginn 29. ágúst eða á afmælisdegi hans. Þá verða liðnir tveir mánuðir frá því að söngvarinn lést á heimili sínu. Meira

Jackson og fleiri frægir
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 17.8 | 6:00

Himinháar tekjurMyndskeið

Tekjur af ýmissi starfsemi tengdri Michael Jackson hafa numið um 12,5 milljörðum íslenskra króna frá því poppgoðið lést hinn 25. júní síðastliðinn. Meira

Blanket með systur sinni Paris
Veröld/Fólk | mbl | 12.8 | 9:16

Jackson sagður kynfaðir Blanket

Fram kemur á fæðingarvottorði Prince Michael II Jackson, yngsta sonar poppstjörnunnar Michael Jackson sem gengur undir gælunafninu ‘Blanket’, að Jackson sé kynfaðir hans. Þar kemur hins vegar ekki fram hver móðir drengsins er en það hefur aldrei verið gefið upp. Meira

Michael Jackson á sviði árið 1984
Veröld/Fólk | mbl | 11.8 | 15:12

Upptökur frá æfingum birtar

Sony Pictures Entertainment hafa tilkynnt að valdir kaflar úr myndbandsupptökum frá æfingum Michael Jacksons fyrir fyrirhugaða tónleika hans í London verði gefnar út á mynddiski. Meira

Michael Jackson.
Veröld/Fólk | mbl | 10.8 | 7:53

Jackson jarðsettur með leynd

Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag, að bandaríska poppstjarnan Michael Jackson hafi verið jarðsettur með leynd um helgina í grafreit í Hollywood Hills. Jackson lést 25. júní sl. Meira

Paris Jackson sést hér ásamt bróður sínum Prince Michael Jackson II á minningarhátíðinni um Jackson, ...
Veröld/Fólk | mbl | 9.8 | 14:26

Segist vera faðir dóttur Jacksons

Fyrrum barnastjarna og vinur poppkóngsins Michaels Jacksons segir mögulegt að hann sé faðir eins af börnum Jacksons. Mark Lester sagði í viðtali við breska blaðið News Of The World að hann hafi gefið popparanum sæði. Hann sé reiðubúinn að gangast undir faðernispróf. Meira

Fær forræðið
Veröld/Fólk | AFP | 3.8 | 21:51

Dómari afhendir Katherine Jackson forræðiðMyndskeið

Dómari í Los Angeles hefur formlega úrskurðað að Katherine, móðir Michael Jackson, fái forræðið yfir þremur börnum hans en þau hafa verið í hennar umsjón frá láti hans þann 25. júní sl. Er það í samræmi við samkomulag foreldra Michales og barnsmóður hans, Debbie Rowe. Meira

Leitað á heimili Conrad Murrey
Veröld/Fólk | AFP | 31.7 | 22:33

Skuldum vafinn læknirMyndskeið

Læknir tónlistarmannsins Michaels Jackson, Conrad Murrey, er skuldum vafinn samkvæmt dómsskjölum sem birt voru í Nevada í kvöld. Skuldar Murrey yfir 770 þúsund dali, 98,9 milljónir króna og stendur frammi fyrir því að lúxusheimili hans í Las Vegas verði selt á uppboði. Meira

Fjölmiðlamenn standa vaktina við læknastofu Conrad Murray.
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 31.7 | 10:32

Dánarorsök Jacksons ekki opinberuð

Réttardómastjóri í Los Angeles hefur frestað því um óákveðinn tíma að birta niðurstöður krufningar á líki poppstjörnunnar Michael Jackson. Er þetta gert að beiðni lögreglu vegna rannsóknarhagsmuna. Meira

Howard Weitzman og John Branca eftir að Branca og John McClain voru skipaðir fjárhaldsmenn dánarbús ...
Veröld/Fólk | mbl | 31.7 | 9:16

Erfðaskrá Jacksons falin?

L. Londell McMillan, lögmaður Katherine Jackson, móður poppstjörnunnar Michael Jackson, segir ekki rétt að hún vilji endurrita erfðaskrá hans frá árinu 2002. Hún vilji hins vegar frá úr því skorið hvort eðlilega hafi verið staðið að meðhöndlun hennar Meira

Amman fær forræðið
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 30.7 | 14:51

Samkomulag um börn JacksonsMyndskeið

Samkomulag hefur náðst á milli Katherine Jackson, móður söngvarans Michael Jackson, og fyrrum eiginkonu hans Debbie Rowe um að Katherine fái forræði yfir tveimur börnum Michael og Debbie. Meira

Það nýjasta úr heimi fræga fólksins
Veröld/Fólk | mbl | 30.7 | 10:39

Lík Jacksons í Forest Lawn Myndskeið

Toto Jackson, bróðir poppstjörnunnar Michael Jackson, segir lík hans vera geymt á ótilgreindum stað í Forest Lawn kirkjugarðinum í Beverly Hills en fjölskylda söngvarans hefur enn ekki komist að niðurstöðu um að hvar hann skuli grafinn, fimm vikum eftir dauða hans. Þetta kemur fram á fréttavef Sky. Meira

Michael Jackson
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 30.7 | 5:30

Hári Jacksons breytt í demanta

Fréttir af Michael Jackson verða bara skrítnari og skrítnari eftir því sem lengra líður frá dauða hans. Fyrir skemmstu var greint frá því að poppkóngurinn hefði fyrir löngu misst nef sitt og neyðst til þess að ganga með gervinef síðastliðinn áratug. Meira

Lögreglumenn bera út gögn fengin í húsleitum á læknastofum Conrad Murray.
Veröld/Fólk | mbl | 24.7 | 8:33

Húsleitir hjá einkalækni Jacksons

Lögregla rannsakar nú hvort einkalæknir Jacksons gæti verið sekur um manndráp. Skjöl sem lögð voru fram fyrir dómara í Houston í Texas vegna húsleitar lögreglu staðfesta þetta. Læknirinn er þó ekki enn ekki formlega grunaður um að hafa valdið dauða Jacksons. Meira

Michael Jackson lést þann 25 júní.
Veröld/Fólk | mbl | 23.7 | 16:27

Skoðuðu dánarvottorð í leyfisleysi

Greint hefur verið frá því að a.m.k. fimm starfsmenn réttardómstjóra í Los Angeles í Bandaríkjunum hafi skoðað dánarvottorð poppstjörnunnar Michael Jackson í óleyfi áður en það var gert opinbert. Meira

Michael Jackson. Enn er margt á huldu varðandi dauðdaga poppgoðsins.
Veröld/Fólk | mbl | 22.7 | 16:58

Leitað á lækningastofu einkalæknis Jacksons

Lögreglumenn á vegum Fíkniefnaeftirlits Bandaríkjanna (DEA) hafa farið inn á lækningastofu Conrad Murray, sem var einkalæknir tónlistarmannsins Michaels Jacksons, í Houston og framkvæmt þar húsleit. Meira

Michael Jackson
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 22.7 | 15:06

Telur sig vera son Jackson

Norðmaðurinn Omer Bhatti, sem er 25 ára dansari, er nú sagður hafa farið fram á faðernispróf til að ganga úr skugga um hvort hann sé sonur söngvarans Michael Jackson, sem lést í júní. Meira

Breski leikarinn Rupert Everett
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 22.7 | 14:43

Jackson lifandi listgjörningur

Breski leikarinn Rupert Everett hefur greint frá því að hann sé feginn því að Michael Jackson sé látinn þar sem það hlífi honum við öllu því álagi sem hefpi fylgt fyrirhugaðri tónleikaferð hans. Meira

Joe Jackson tekur við minningarskildi um son sinn Michael Jackson í fæðingarbæ hans Gary.
Veröld/Fólk | mbl | 21.7 | 19:09

Joe Jackson útskúfaður?

Joe Jackson, faðir poppstjörnunnar Michael Jackson, gaf í skyn er hann kom fram í viðtalsþætti Larry King í gærkvöldi að hann sé að mestu útskúfaður úr fjölskyldu sinni. Meira

Katherine Jackson.
Veröld/Fólk | mbl | 19.7 | 13:52

Katherine íhugar erfðamál

Katherine Jackson, móðir poppstjörnunnar Michael Jackson, lagði á föstudag fram fyrirspurn um það til dómara hvort hún gæti áfrýjað úrskurði dómara umað lögfræðingurinn John Branca og tónlistarútgefandinn John McClain séu fjárhaldsmenn dánarbús hans. Meira

Janet Jackson með börnum bróður síns Michael Jackson á minningarathöfn um hann.
Veröld/Fólk | mbl | 19.7 | 13:32

Janet Jackson á lausu

Bandaríska söngkonan Janet Jackson er nú sögð hafa slitið sambandi sínu við kærasta sinn Jermaine Dupri eftir sjö ára samband. Meira

Dr. Arnold Klein, húðsjúkdómalæknir Michael Jackson
Veröld/Fólk | mbl | 16.7 | 15:24

Greiðslur Jackson til Klein rannsakaðar

Lögregla í Los Angeles í Bandaríkjunum rannsakar nú kröfur húðsjúkdómalæknisins Arnold Klein á hendur poppstjörnunni Michael Jackson. Meira

Michael Jackson lést skyndilega þann 25, júní.
Veröld/Fólk | mbl | 15.7 | 15:49

Morðrannsókn vegna láts Jacksons

Staðhæft er á vefsíðunni TMZ.com sem fyrst greindi frá láti poppstjörnunnar Michael Jackson að lögregla hafi nú skilgreint lát hans sem morð. Áður hafa faðir hans og systir lýst því yfir að þau telji að Michael hafi verið myrtur. Meira

Elizabeth Taylor (t.h.) sést hér með leikkonunni Shirley MacLaine.
Veröld/Fólk | mbl | 15.7 | 10:52

Liz Taylor á sjúkrahús

Kvikmyndaleikkonan Elizabeth Taylor hefur verið lögð inn á sjúkrahús en lát söngvarans Michael Jackson er sagt hafa fengið mikið á hana. Meira

Debbie Rowe og Michael Jackson á hjónabandsárum þeirra
Veröld/Fólk | mbl | 15.7 | 10:30

Bréf Rowe birt

Debbie Rowe, barnsmóðir og fyrrum eiginkona poppstjörnunnar Michael Jackson, skrifaði vinkonu sinni tölvupóst eftir lát hans þar sem hún sagðist ekki hafa áhuga á að fá forræði yfir tveimur börnum þeirra. Meira

Janet Jackson með bróður sínum Jermaine.
Veröld/Fólk | mbl | 14.7 | 14:06

Vilja að Janet taki við af Katherine

Systkini Michael Jackson eru sögð vilja að systir þeirra Janet Jackson taki að sér börn hans þrjú í stað móður þeirra Katherine, sem hann fól að sjá um börnin í erfðaskrá sinni. Meira

Aðdáendur Jackson safnast saman í Lundúnum
Veröld/Fólk | mbl | 14.7 | 10:12

Segir Jackson hafa samþykkt fjölgun tónleikaMyndskeið

Randy Phillips, forstjóri AEG Live fyrirtækisins sem stóð að fyrirhuguðum tónleikunum Michael Jackson, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann viðurkennir að tónleikarnir hafi upphaflega átt að vera 31. Meira

Janet og La Toya Jackson við minningarathöfn um bróður sinn Michael með tveimur af þremur ...
Veröld/Fólk | mbl | 13.7 | 15:26

Segir Jackson hafa verið myrtan

La Toya Jackson hefur greint frá því að hún telji að bróðir hennar Michael Jackson hafi verið myrtur af skuggaverum sem hengdu sig á hann í von um að komast yfir peninga. Þetta kemur fram á vef Ananova. Meira

Börn Michael Jackson; Paris, Prince Michael I og Prince Michael II
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 13.7 | 9:37

Deilt um framtíð barna Jackson

Joe Jackson, faðir poppstjörnunnar Michael Jackson og fyrrum umboðsmaður söngsveitarinnar The Jackson Five, er nú sagður vilja stofna söngsveit með börnum hans þremur undir nafninu The Jackson Three. Meira

Nú er rannsakað í þaula hvað dró Michael Jackson til dauða.
Veröld/Fólk | AFP | 10.7 | 10:47

Útiloka ekki manndráp

Rannsóknin á andláti Michaels heitins Jackson tók nýja stefnu í dag þegar rannsakendur fengu til heimild að leggja hald á heilsufarsskýrslur söngvarans og háttsettur lögreglumaður neitaði að útiloka að um manndráp hafi verið að ræða. Meira

Mariah Carey syngur við minnigarathöfnina um Michael Jackson í Staples Center
Veröld/Fólk | mbl | 9.7 | 14:03

Kistan sló Carey út af laginu

Bandaríska söngkonan Mariah Carey hefur beðið aðdáendur sína afsökunar á frammistöðu sinni á minningartónleikunum um Michael Jackson á Twitter síðu sinni. Meira

Neverland búgarður Michael Jackson
Veröld/Fólk | mbl | 9.7 | 10:55

Neverland endurreistur í Kína?

Hópur kínverskra fjárfesta áformar nú að byggja eftirlíkingu af Neverland búgarði Michael Jackson í nýjum landbúnaðargarði í Shanghai. Meira

Kista Jacksons við minningarathöfn í Staples Center í Los Angeles á þriðjudag.
Veröld/Fólk | mbl | 9.7 | 10:05

Enn óvíst um hvílustað Jacksons

Ekki hefur enn verið greint frá því hvenær poppstjarnan Michael Jackson verður jarðsunginn en fjölskylda hans er sögð ætla að bíða með að jarða hann þar til yfirvöld hafi afhent þeim alla líkamshluta hans. Meira

Paris Jackson grætur föður sinn Michael Jackson eftir að hafa ávarpað minnigarathöfn um hann í ...
Veröld/Fólk | mbl | 8.7 | 13:02

Ávarp Paris óundirbúið

Svo virðist sem ávarp Paris Jackson, ellefu ára gamallar dóttur Michael Jackson, við minningarathöfn hans í gær hafi verið óundirbúið. Þá er Jackson fjölskyldan ekki sögð hafa verið sammála um hvort rétt væri að hún ávarpaði samkomuna. Meira

Minningarathöfn sem hæfir konungi
Veröld/Fólk | mbl | 7.7 | 19:45

Mikið um dýrðir á minningarathöfninniMyndskeið

Mikið var um dýrðir á opinberrri minningarathöfn um tónlistarmanninn Michael Jackson sem fram fór í Staples Center íþróttamiðstöðinni í Los Angeles í dag. Boðið var upp á ýmis tónlistaatriði og margir fluttu ávörpuðu samkomuna. Gullslegin líkkista Jacksons stóð fyrir framan sviðið en í salnum voru um 20 þúsund manns. Meira

Mikill viðbúnaður er við Forest Lawn vegna athafnarinnar
Veröld/Fólk | mbl | 7.7 | 16:29

Útför Jackson hafin

Útför poppstjörnunnar Michael Jackson er nú hafin í Forest Lawn kirkjugarðinum í Hollywood en athöfnin fer fram að hætti Votta Jehóva. Útförin er lokuð almenningi en að henni lokinni verður ekið með kistu hans að Staples Center íþróttamiðstöðinni þar sem opinber minningarathöfn um hann fer fram. Meira

Lögreglumenn standa við Staples Center þar sem minningarathöfn um Michael Jackson fer fram síðar í ...
Veröld/Fólk | mbl | 7.7 | 15:33

Kista Jacksons við minningarathöfnina

Kista Michael Jackson mun verða flutt í Staples Center þar sem minningarathöfn um hann fer fram í dag. Áður mun trúarleg athöfn fara fram en sú athöfn verður lokuð almenningi. Meira

John Branca
Veröld/Fólk | mbl | 7.7 | 9:51

Erfðaskrá dæmd gild

Dómari í Los Angeles hafnaði í gær kröfu Katherine Jackson, móður Michael Jackson, um að hún yrði gerð að fjárhaldsmanni dánarbús hans. Meira

Minningarathafnar Jackson beðið
Veröld/Fólk | mbl | 7.7 | 8:59

Taylor kallar minningarathöfn lýðskrumMyndskeið

Kvikmyndaleikkonan Elizabeth Taylor hefur lýst því yfir að hún muni ekki sækja minningarathöfn um vin sinn Michael Jackson í dag þar sem hún líti á athöfnina sem lýðskrum. Þetta kemur fram á fréttavef Sky. Meira

Debbie Rowe
Veröld/Fólk | mbl | 6.7 | 15:38

Rowe sækir minningarathöfnina

Debbie Rowe, fyrrum eiginkona og barnsmóðir poppstjörnunnar Michael Jackson, hefur tilkynnt að hún muni verða viðstödd minningarathöfn um hann í Los Angeles' Staples Center á morgun. Meira

[ Fyrri síða | Næsta síða » ]

finnur.is