Guðrún Óla söng Power of Love með söngdívunni Celine Dion í áheyrnarprufunum í The Voice, en fyrsti þátturinn fór í loftið á SkjáEinum í kvöld. Þjálfararnir Salka Sól og Helgi Björns voru bæði hrifin af flutningnum og snéru sér við í þeirri von að fá Guðrúnu í sitt lið.
Það fór hins vegar framhjá Guðrúnu þegar Helgi sneri sér við, enda gerði hann það á síðustu sekúndu atriðisins og ætlaði hún að rjúka af sviðinu fullviss um að hún væri sjálfvalin í lið Sölku. Þegar hún var stoppuð af og bent á mistökin hrópaði hún upp yfir sig og valdi Helga sem þjálfara.
Áheyrnarprufuna má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.