Elísabet Ormslev hefur gjarnan verið titluð söngdíva í The Voice enda hefur lagavalið í keppninni rímað við titilinn, að ónefndri röddinni. Dívan var vissulega til staðar í fyrsta þætti beinu útsendinganna sl. föstudag þar sem Elísabet söng lagið At Last með Etta James.
„Ég er orðlaus. Rosalegt, þú ert náttúrlega ótrúleg söngkona, það er ekki hægt að segja neitt annað. Fullkomið!“ Sagði Svala Björgvins, þjálfari Elísabetar, um flutninginn, sem var svo góður að Svala valdi Elísabetu áfram í undanúrslitin sem fara fram næsta föstudag.
Lögin sem Elísabet hefur sungið hingað til hafa öll verið stór og mikil, enda hefur röddinni hennar oft verið líkt við rödd stórsöngkonunnar Adele.
Svala nefndi það við blaðamann að til stæði að hliðra Elísabetu örlítið til í þægindarammanum í næsta þætti í lagavali, en þær velja lögin í sameiningu. Svala gaf ekki meira upp um það, en sagði jafnframt að lagið væri meira út í diskó og dans, og líklegt til að hrista rækilega upp í salnum.
Elísabet var í miklu uppáhaldi hjá twittverjum síðastliðinn föstudag, sem lofuðu frammistöðu hennar í The Voice óspart.
Restin af #voiceisl er bara til gamans. Sorrý, sigurvegarinn er fundinn. Við höfum keppanda á heimsmælikvarða. Elísabet Ormslev #TeamSvala
— Biggi lögga (@biggilogga) November 20, 2015
omg keppnin er búin Elísabet er out of this solarsystem #voiceisl
— Ólafur R. Rafnsson (@OlafurRobert) November 20, 2015
Elísabet Ormslev er hin íslenska Adele #voiceisl
— Kolbrún Björk (@kollabjork) November 20, 2015
Má taka þátt í söngkeppni eins og #voiceisl ef maður er jafnt góður og Elísabet? Er það ekki svindl fyrir hina keppendurna?
— Snakkdís (@ammafreysa) November 20, 2015
JesúsminnogPétur Elísabet Ormslev!!! Þú ert svaaaaakaleg!! #teamsvala #voiceisl
— HrabbyViglunds (@HrabbyYr) November 20, 2015
Í allt öðrum gæðaflokki. Go Elísabet! #voiceisl
— Magnus Thor (@MagnusAsgeirs) November 20, 2015
Ok, Elísabet var að rústa þessari keppni #voiceisl
— Margrét Gísladóttir (@margretgis) November 20, 2015
Elísabet ber af #voiceisl
— Matthildur HJ (@HrMatthildur) November 20, 2015
Legg til að símasambandi til vesfjarða verði slitið, Elísabet átti þetta #voiceisl #teamsvala
— Jóna Júlíusdóttir (@jonajul) November 20, 2015