Rapp fylgir öðrum lögmálum

Arnar Freyr og Salka Sól
Arnar Freyr og Salka Sól mbl.is/Freyja Gylfa

„Ég geri rapptónlist sem fylgir aðeins öðrum lögmálum, en þetta er miklu meira en bara söngurinn,“ segir Arnar Freyr Frostason, rappari og aðstoðarþjálfari Sölku Sólar í The Voice Ísland, um hlutverk sitt í þáttunum. „Það er svo margt sem gerir góðan söngvara.“

Einhverjir ráku upp stór augu þegar Salka valdi Arnar sem aðstoðarþjálfara sinn, en hann er líka kærastinn hennar. Arnar gefur hins vegar lítið fyrir gagnrýnisraddir. „Ég myndi skilja að fólk kallaði þetta klíkuskap ef ég vissi ekki hvað ég er að gera. Ég hef fulla atvinnu af því að vera performer og ég veit mikið um það.“

Arnar og Salka að þjálfa fyrir einvígi í The Voice …
Arnar og Salka að þjálfa fyrir einvígi í The Voice Ísland Mynd: The Voice

Áður gert grín að raunveruleikasjónvarpi

Arnar þurfti lítið að hugsa sig um þegar honum var boðið að taka að sér hlutverk aðstoðarþjálfara í þáttunum. „Mér fannst það geðveikt, ég stökk á tækifærið því ég er svo mikill áhugamaður um góða popptónlist, og góða tónlist almennt.“

Hreint vatn og góðir söngvarar

„Það sem kom mér á óvart, ekki bara af því að ég er í þessu, er hvað þetta var stórt og flott og mikið production. Þetta er risabatterí sem gengur ótrúlega vel upp. Fólk hefur hingað til horft meira á íslenskt raunveruleikasjónvarp til að gera grín að því. Ég held að flestir séu sammála um að þetta sé í fyrsta skiptið sem þetta virkar.“

Annað sem kom Arnari á óvart var hve hár standardinn var og margir ekki valdir sem voru mjög góðir að hans mati. „Við erum svo fámenn þjóð og lítil en það er svo mikið af góðum söngvurum. Óendanlegt magn af hreinu vatni og góðum söngvurum, það er Ísland.“

Næsta skref stórt og mikilfenglegt

Þegar talið barst að framhaldinu hjá Úlfi Úlfi, rappdúóinu sem Arnar er í ásamt rapparanum Helga Sæmundi Guðmundssyni var fátt um svör. „Við erum undir feldi, ég get eiginlega ekkert talað um það, við erum að undirbúa næsta skref. Það verður stórt og mikilfenglegt skref, meira segi ég ekki.“

Úlfur Úlfur á Iceland Ariwaves
Úlfur Úlfur á Iceland Ariwaves Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler