Allir með sand í augunum

„Það bara uxu á mig fjaðrir og ég fór að fljúga. Þetta var gjörsamlega geggjað, svo fallegt að ég táraðist bara,“ sagði Svala Björgvins eftir flutning Þórdísar Imsland, Ólafar Kristínar Þorsteinsdóttur og Tómasar Helga Wehmeier á Hallelujah með Leonard Cohen. Svala er þjálfari þríeykisins í sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans, en lagið fluttu þau saman í ofureinvígjum þáttanna.

Svala þurfti að velja hvaða söngvara hún tæki með sér í næsta hluta keppninnar en áður gáfu hinir þjálfararnir sitt álit. Unnsteinn og Helgi voru sammála um að Þórdís ætti skilið að sigra einvígið en voru eigi að síður ánægðir með hin tvö. Ólöf kom þeim sérstaklega á óvart og þar var Salka Sól á sama máli.

„Ólöf, það var einhver tregi í flutningnum á textanum, stundum eins og orðin kæmust næstum því ekki út og þá byrjaði gæsahúðin, það var svo fallegt. Sambland af söng einlægni og framkomu, þetta er ekki bara söngur. Ólöf mér fannst þú sýna allan pakkann í þessum flutningi svo ég myndi segja Ólöf.“

Eftir að Svala var búin að þurrka tárin úr augunum þurfti hún að taka ákvörðun. „Við unnum mikið í því að túlka textan og það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur að setja þetta atriði saman. Þau eru bara öll svo hæfileikarík og einlæg, náðu að skila laginu og textanum svo vel og ég er bara rosalega stolt og trúi á ykkur sem söngvara og tónlistarmenn. En ég verð að segja Þórdís.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson