Lið Svölu syngur fyrir Þórdísi

Allir liðsmenn þjálfarans Svölu Björgvins úr sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland hittust til að sýna stuðning sinn við Þórdísi Imsland fyrir úrslitaþátt The Voice Ísland. Hún er sú eina sem eftir stendur í þáttunum úr liðinu og keppir til úrslita nú í kvöld. Þau tóku saman lagið California Dreaming ásamt þjálfaranum sínum, flutninginn má heyra í myndskeiðinu hér að ofan.

Úrslitaþátturinn hefst kl. 20:00 í Sjónvarpi Símans og þar etja fjórir söngvarar kappi, einn úr liði hvers þjálfara í þáttunum.

Auk Þórdísar eru það þau Arnar Dór Hannesson úr liði Helga Björns, Karitas Harpa Davíðsdóttir úr liði Sölku Sólar og Sigurjón Örn Böðvarsson úr liði Unnsteins Manúels sem stíga á svið í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant