Geta ekki afborið að vera aðskilin

Leikkonan Meghan Markle er er sögð yfir sig ástfangin af …
Leikkonan Meghan Markle er er sögð yfir sig ástfangin af prinsinum Harry. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Harry prins og Meghan Markle virðast vera reiðubúin að taka samband sitt upp á næsta stig, en félagar leikkonunnar segja að þau hafi verið óaðskiljanleg upp á síðkastið. Þá er því einnig spáð að parið verði búið að trúlofa sig þegar tekur að vora.

„Þau hafa tekið sambandið upp á næsta stig. Segja má að þau búi saman, en hún eldar fyrir hann og skellir sér í ræktina. Þau njóta þess að eyða tíma saman,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni, tengdum leikkonunni.

„Ég gæti vel trúað því að þau væru búin að trúlofa sig í vor. Ég veit að það hljómar eins og það sé rosalega snemmt, en hún er yfir sig ástfangin og þau geta ekki afborið að vera aðskilin.“

Eins og fram kemur í frétt Mirror skelltu skötuhjúin sér í rómantískan kvöldverð á dögunum, á einn af fínni veitingastöðunum í London, þar sem þau litu vart hvort af öðru.

Frétt mbl.is: Eyddu áramótunum undir norðurljósunum

Margir telja að skötuhjúin muni brátt trúlofa sig.
Margir telja að skötuhjúin muni brátt trúlofa sig. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson