Harry prins og kærastan hans, Meghan Markle, hafa haldið sambandi sínu utan við sviðsljósið en þau hafa enn ekki sést saman opinberlega.
Margir telja að þess sé ekki sé langt að bíða þar til skötuhjúin koma fram opinberlega í fyrsta sinn, en samkvæmt frétt Mirror munu þau líklega mæta í sameiningu í brúðkaup Pippu Middleton, yngri systur Katrínar hertogaynju af Cambridge, sem fram fer 20. maí næstkomandi.
„Harry og Meghan eru yfir sig ástfangin, en hann vill ekki lengur þurfa að fela hana fyrir umheiminum. Hann er náinn Pippu og hefur fengið boð í brúðkaupið. Hann er staðráðinn í að taka Meghan með sér,“ er haft eftir ónafngreindum heimildamanni.