Reykti í flugvél og slasaði lögregluþjón.

Það er góður eiginleiki að geta haft hemil á sér, og því getur Dani nokkur velt fyrir sér meðan hann situr í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn.

Maðurinn tók fyrst þá ákvörðun að bregða sér á salernið í flugvél sem hann var í til að reykja. Áhöfn flugvélarinnar lét yfirvöld á Kastrup flugvelli vita og var maðurinn, sem var talsvert drukkinn, umsvifalaust handtekinn á flugvellinum.

Þegar verið var að ganga með manninn frá borði og að lögreglubíl gat hann ekki stillt sig um að bregða fæti fyrir einn lögregluþjóninn með þeim afleiðingum að hann féll niður tröppurnar.

Lögreglumaðurinn meiddist á handlegg og fæti og er frá vinnu en maðurinn situr nú á bak við lás og slá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant