Slanga í strætó

Slanga.
Slanga. AP

Farþegar í litlum strætisvagni í Manila, höfuðborg Filippseyja, urðu skelfingu lostnir þegar þeir urðu varir við 2,1 metra langa kyrkislöngu. Farþegarnir þustu út úr strætisvagninum í dauðans ofboði og stöðvuðu bílaumferð á fjölfarinni götu.

Kyrkislangan hafði vafið sig um stálstöng undir vagninum á leiðinni til höfuðborgarinnar frá bæ í nálægu héraði, að sögn lögreglunnar.

Lögreglumönnum og vegfarendum tókst að koma kyrkislöngunni í poka eftir að hún skreið út á götuna. Snákasérfræðingur náttúruverndarstofnunar, sem tók við slöngunni, sagði að hún virtist vera gæf og vön fólki þannig að hún kynni að vera gæludýr sem hefði
strokið að heiman og húkkað strætó til borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant