Umsátur villisvína

Þýskir unglingar sem stálu bíl töldu sig ekki eiga annan kost færan en að hringja í lögregluna  þar sem þeir óttuðust villisvín sem sátu um þá.

Dieter Meier og Reiner Klose, báðir átján ára, stálu bíl og flúðu á honum inn í þykkt skóglendi með lögregluna á hælunum í nágrenni  Mecklenburg. Þeim tókst að stinga lögregluna og ætluðu sér að láta lítið fyrir sér fara þar til daginn eftir. En ekki tók betra við er hópur villisvína gerði aðsúg að þeim. Flúðu tvímenningarnir upp í tré en svínin biðu róleg fyrir neðan. Fullir örvæntingar hringdu þeir til lögreglunnar eftir hjálp. Lögregla handtók þá á staðnum en þrátt fyrir það  voru unglingarnir alsælir. Enda töldu þeir sig mun öruggari í höndum lögreglu en hjá svínunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler