Dýrkeypt hringing eftir leigubíl

Breskur leigubíll.
Breskur leigubíll.

BBC hefur rekið dagskrárgerðarmann sinn fyrir að óska sérstaklega eftir því við leigubílastöð að senda sér ekki bíl með ökumanni af asískum uppruna.

Sam Mason sem sér um eftirmiðdagsþátt BBC í útvarpi í Bristol lét þessi orð falla þegar hún pantaði bíl fyrir 14 ára dóttur sína sem hún sagði myndu algjörlega „fara í kerfi“ ef hún fengi leigubílstjóra með túrban.

Samtöl við leigubílastöðina eru öll tekin upp vegna hugsanlegra umkvartana og einhvern veginn rataði útskrift af samtalinu til götublaðsins Sun, sem birti það að í heild.

BBC vísaði Mason umsvifalaust úr starfi með þeim orðum að enda þótt ummælin hefðu ekki fallið í útsendingu þá væru þau óverjandi og um leið óverjandi fyrir BBC að hafa Mason áfram í starfi, að því fram kemur í The Indepenent.

Samkvæmt útskrift af samtalinu eins og það birtist í Sun var það á þessa leið - í lauslegri endursögn:

Mason: „Ég veit að þetta hljómar eins og svarnir kynþáttafordómar sem ég er ekki haldin .. vinsamlega ekki senda einhvern, þú veist. Enskur einstaklingur væri fínn, kona ennþá betri.“

Leigubílastöðin: „Við myndum telja þetta kynþáttafordóma. Við getum ekki refsað asískum bílstjórum og bara sent enska.“

Mason: „Þið hafið nú gert það áður.“

Leigubílastöðin: Nú, jæja. En ég er persónulega ekki samþykk því.“

Mason: „Það er nú einu sinni ekki 14 ára dóttir þín sem á í hlut, er það?“

Leigubílastöðin: „Jæja, en það eru kynþáttafordómar að vilja ekki asískan bílstjóra.“

Mason: „Ef þetta snerist um mig væri mér sama þótt hann væri tvíhöfða, en við erum að tala um litlu stelpuna mína."

Mason er því næst færð í símanum yfir á karlmann í símsvörun leigubílastöðvarinnar og segir honum að samstarfskona hans hafi verið með „derring“.

Hún segir síðan: „Ég starfa hjá BBC. Ég er langt frá því að vera fordómafull og þessi ómenntaða kona hefur engan rétt á að kalla mig það.“ Hún segir síðan um dóttur sína: „Ég vil ekki að hún endi uppi með einhvern með túrban á hausnum. Það gerði út af við hana. Hún er ekki vön Asíubúum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson