Missti heyrnina eftir ástríðufullan koss

Það er aldrei of varlega farið þegar fólk læsir saman …
Það er aldrei of varlega farið þegar fólk læsir saman vörunum í eldheitum kossi. AP

Ung kínversk kona missti heyrnina að hluta eftir að kærastinn hennar kyssti hana full ástríðulega.

Fram kemur í kínverskum fjölmiðlum að konan, sem er á þrítugsaldri, hafi farið á sjúkrahús í Zhuhai, sem er í Guangdong-héraði landsins, eftir að hún hafði misst alla heyrn á vinstra eyra.

Í kjölfar atviksins hafa fjölmiðlar varað við því að fólk gangi of langt í kossaflensi sínu, segir á fréttavef breska ríkisútvarpsins.

„Þrátt fyrir að það sé alla jafna mjög öruggt að kyssast, þá vilja læknar hvetja fólk til að fara varlega,“ kemur fram í China Daily.

Læknirinn sem tók á móti konunni á sjúkrahúsinu sagði í samtali við fjölmiðla að kossinn hafi dregið úr loftþrýstingnum í munninum, dregið hljóðhimnuna út og það hafi orðið þess valdandi að heyrnin gaf sig.

Hann segir hins vegar að konan muni ná sér að fullu eftir um tvo mánuði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson