Sólgleraugu fyrir hundinn

Matthew McConaughey og Camilla Alves.
Matthew McConaughey og Camilla Alves. AP

Bandaríski leikarinn Matthew McConaughey óskaði eftir því við starfsfólk á kaffihúsi nýverið að hann fengi eins sólgleraugu lánuð fyrir hundinn sinn og hann fékk fyrir sig og unnustu sína, Camila Alves.

Samkvæmt frétt New York Daily News vildi leikarinn að hundurinn, BJ, fengi sömu þjónustu og þau. Ekki kemur fram í fréttinni hvort starfsfólkið varð við beiðninni.

McConaughey er þekktur fyrir ást sína á hundinum og sjást þeir oft skokka saman og mætir leikarinn iðulega með hundinn í jóga á ströndinni.  Segja þeir sem hafa fylgst með þeim félögum í jóga að leikarinn virðist hafa meiri áhuga á jóganu heldur en hundurinn því BJ virðist oft gleyma einbeitingunni og bregður á leik á ströndinni í stað þess að íhuga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson