Facebook afhjúpaði innbrotsþjófinn

Það borgar sig ekki alltaf að fara inn á samskiptavefinn Facebook í vinnunni. Á því fékk 19 ára gamall innbrotsþjófur í Vestur-Virginíu að kenna nýlega.

Pilturinn er grunaður um að hafa skriðið inn um glugga á húsi í bænum Martinsburg og stolið tveimur demantshringjum, sem metnir eru á um hálfa milljón íslenskra króna.

En á meðan þjófurinnvar inni í húsinu virðist hann hafa fyllst mikilli þörf á að skoða Facebook-síðu sína á netinu. Það gæti orðið honum að falli því hann gleymdi að logga sig út á áður en hann hélt á braut. Sönnunargögnin blöstu við þegar lögreglan var kölluð til.  

Lögreglan var því ekki höndum seinni að handtaka Facebooksíðueigandann sem hefur nú verið ákærður fyrir innbrotið. Hann á yfir höfði sér fangelsisdóm, verði hann fundinn sekur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson