Kærð fyrir kynlífsóhljóð

Cartwright hjónin angra nágranna sína með óhljóðunum sem frá þeim …
Cartwright hjónin angra nágranna sína með óhljóðunum sem frá þeim heyrist í samförum.

10 mínútna löng upptaka af kynlífsathöfnum breskra hjóna var lögð fram sem sönnunargagn fyrir rétti í Newcastle í Englandi.  Þau hafa verið kærð fyrir að raska ítrekað svefnfriði nágranna sinna vegna óhljóða í kynlífinu. 

Ástarlot þeirra hjóna, Caroline og Steve Cartwright, var lýst sem „líkust morðtilraun“ og „yfirnáttúrulegum“ við vitnaleiðslur í réttarhöldunum. Konan, sem er 48 ára, var fundin sek um hávaðatruflun en hún hefur áfrýjað dómnum og vísar í grein 8 í Mannréttindasáttmála sem tilgreinir rétt fólks til að einkalíf þeirra og fjölskyldulíf sé virt.

Nágrannakona þeirra hjóna, Rachel O'Connor, lýsti því fyrir rétti hvernig hún hefur margsinnis mætt of seint til vinnu vegna þess að hún sefur yfir sig eftir andvökunótt vegna hávaðans frá Caroline Cartwright. „Það er ekki ánægjulegt að búa þarna og þetta hefur valdið mér mikilli streitu,“ hefur BBC eftir henni. „Hljóðin í þeim hljóma eins og þau finni bæði til mikils sársauka. Ég hef aldrei áður heyrt neitt þessu líkt.“

Sérstökum upptökubúnaði var komið fyrir á heimili O'Connor til að kanna hversu vel ástarlot nágrannana bárust gegnum þilin. Hljóðstyrkur kynlífs þeirra mældist á bilinu 30 til 47 desíbel.

Caroline Cartwrigth segist ekki hafa neina stjórn á því hvaða hljóð hún gefi frá sér á meðan hún stundar kynlíf. „Eftir að mér var stefnt reyndi ég að ná tökum á þessu. Ég reyndi meira að segja að nota kodda yfir andlitið til að draga úr hljóðunum. Ég skildi ekki hvers vegna fólk var að segja mér að þegja vegna þess að fyrir mér er þetta mjög eðlilegt. Ég skildi ekki hvað þeim gekk eiginlega til.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant