Hundurinn lifði af 90 metra fall

Hundurinn er af tegundinni springer spaniel.
Hundurinn er af tegundinni springer spaniel. Árni Sæberg

Hundur sem skemmti sér við að elta máfa við klettótta ströndina á Sussex á Englandi má teljast heppinn að vera á lífi. Hundurinn varð svo æstur í leiknum að hann hljóp fram af klettunum og hrapaði um 90 metra niður í sjó. Hundurinn lifði fallið af. 

Hundurinn náði að halda sér á floti eftir að hann lenti í sjónum. Eigendur hundsins hringdu á björgunarlið sem sendi bát út og bjargaði honum. Farið var með hundinn til dýralæknis. Í ljós kom að annað lungað hafði fallið saman, en hundurinn er núna að ná sér.

Stephen Winslade, eigandi hundsins, lýsti óhappinu svona: „Hann hljóp í átt að klettabrúninni og bar hvarf. Hundurinn er mjög vel þjálfaður, en hann hljóp svo hratt að það var engin leið að stoppa hann.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant