Skoðaði samstarfsmann í skanna

Útlínur fólks sjást vel í skannanum.
Útlínur fólks sjást vel í skannanum.

Starfsmaður á Heathrow-flugvelli hefur verið áminntur fyrir brot í starfi eftir að hann skoðaði samstarfsmann í líkamsskanna á flugvellinum. Skanninn er notaður til að leita að vopnum á farþegum á flugvellinum.

Starfsmaðurinn, sem er 25 ára gamall, var yfirheyrður eftir ummæli sem hann lét falla eftir að kona sem hann starfaði með hafði gengið óvart í gegnum skannann.

Útlínur fólks sjást vel þegar gengið er í gegnum skannann. Skannarnir voru teknir í notkun á flugvöllunum í  Heathrow og Manchester eftir að tilraun var gerð til að sprengja upp flugvél á leið til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum. Með skannanum sést hvort farþegar eru með vopn innan klæða. Notkun á þessum skanna hefur verið gagnrýnd.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson