Kynlífsleikföng fyrir byssur

Séu menn á ferðinni í Alabama til 14. febrúar gætu …
Séu menn á ferðinni í Alabama til 14. febrúar gætu þeir fengið svona leikföng fyrir eitt stykki byssu.

Verslanir í Bandaríkjunum, og víðar um heim, undirbúa sig af kappi fyrir dag elskenda 14. febrúar nk., Valentínusardag. Ein verslun í Alabama-fylki, Pleasures, hefur nú boðið sértilboð, þar sem hægt að skipta á byssum fyrir kynlífsleikföng margs konar.

Haft er eftir verslunareigandanum að tilboðið sé hugsað til að koma til móts við þá sem ekki hafa efni á að kaupa eitthvað huggulegt handa elskunni sinni. Ætlar hann fyrst og fremst að taka við úrsérgengnum vopnum og skipta á einhverju sem hægt er að fara með heim og elskast, ekki slást. Eða eins og hann sagði á frummálinu: Make love, not war!

Ef í ljós kemur að vopnin séu illa fengin, eða hafa verið notuð við glæpi, þá ætlar verslunareigandinn að skila þeim til lögreglunnar. Önnur vopn munu fara á uppboð, þar sem ágóðanum verður varið til styrktar fórnarlömbum skotárása

Vopnabúrið út, leikföngin inn?
Vopnabúrið út, leikföngin inn? Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant