Ljón batt enda á ástarleik

Ljón. stækka

Ljón. AFP

Ástarfundur kærustupars í Zimbabwe endaði með skelfilegum hætti þegar ljón réðst á parið með þeim afleiðingum að konan lét lífið. Leit er hafin að ljóninu sem talið er að hafi banað manni á sömu slóðum um liðna helgi.

Frá þessu er greint á fréttavefnum My Zimbabwe. Þar segir að Sharai Mawera og kærasti hennar hafi fundið sér afvikinn stað úti í náttúrunni, í grennd við bæinn Kariba, og notið þar ásta.

Ljónið virðist hafa komið aftan að þeim með þeim afleiðingum að kærastinn spratt á fætur og hljóp burtu en ljónið réðst á Mawera sem lést af sárum sínum.

Kærastinn hljóp nakinn eftir hjálp en þegar lögreglumenn og vopnaðir þjóðgarðsverðir komu á vettvang var það um seinan.

Talið er að sama ljón beri einnig ábyrgð á dauða karlmanns sem hvarf sporlaust um helgina þegar hann gekk frá næturklúbbi og heim til sín. Illa leikið lík mannsins fannst á mánudag.

Ástæða þess að talið er að um sama ljón sé að ræða er að þó svo ljónið hafi ráðist á Mawera snerti það ekki á henni að öðru leyti. Það bendir til að það hafi nýlega étið vel og hafi ekki verið hungrað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda