Bjuggu með beinagrind mömmu

Ekki er algengt að fólk geymi beinagrindur á heimilum sínum stækka

Ekki er algengt að fólk geymi beinagrindur á heimilum sínum AFP

Þrjú japönsk systkini bjuggu í allt að þrjú ár með beinagrind sem talið er að sé af móður þeirra, að sögn lögreglu. Töldu þau að hún hafi ekki dáið heldur breyst í guð.

Systkinin, tvær konur 52 og 59 ára og bróðir þeirra, 65 ára, neita því að hafa viljandi geymt líkið en slíkt er bannað samkvæmt japönskum lögum. Heldur halda þau því fram að móðir þeirra, 88 ára, sé á lífi. „Móðir okkar varð að guði. Hún er ekki látin en umbreyting á sér stað þar sem hún kemst á æðra tilverustig,“ segja þau í samtali við lögreglu.

Talsmaður lögreglu segir að beðið sé eftir endanlegri staðfestingu á því að beinagrindin sé af móður systkinanna. Fyrstu niðurstöður benda til að beinagrindin sé af konu og hún hafi verið látin í tvö eða þrjú ár.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda