Banna kynmök í hofum

stækka

AFP

Yfirvöld á indónesísku eyjunni Bali eru að íhuga að setja upp skilti um bann við kynlífi í hofum hindúa eftir að eistneskt par var gripið glóðvolgt við kynmök í einu þeirra.

Lögreglan fór með parið á lögreglustöð þar sem þau voru yfirheyrð en þau voru staðin að verki í hofi í þorpinu Saraseda.

Að sögn lögreglunnar gaf parið þær skýringar að þau hefðu ekki haft hugmynd um að bannað væri að stunda kynmök í hofum á Bali. Því hafi ekki annað verið í stöðunni en að sleppa þeim úr haldi og setja það í hendurnar á þorpsyfirvöldum hvernig tekið verði á málinu.

Var það niðurstaða þorpsráðsins að halda „hreinsunarathöfn“ í hofinu og að parið skyldi greiða 20 milljónir rúpía, rúmar 250 þúsund krónur, til að standa straum af athöfninni.

Parið viðurkenndi að hafa einnig nýtt sér útisturtu við hofið áður en þau fóru inn til að athafna sig.

Það er því spurning um hvort skiltið „Bannað að stunda kynlíf“ komi við hlið áletrana „Bannað að borða“ og „Bannað að reykja“ í hofum á eyjunni Bali.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda