Sjónvarpsþáttur um hreina sveina

Dominique Dullivan úr þáttunum sat fyrir svörum blaðamanna í gær.
Dominique Dullivan úr þáttunum sat fyrir svörum blaðamanna í gær. Mynd/Reuters

MTV frumsýnir í næstu viku nýja þáttaröð sem fjallar um fólk á þrítugsaldri sem aldrei hefur stundað kynlíf. Þættirnir bera nafnið Virgin Territory og verður þar rætt við bæði þá sem kjósa að bíða með kynlíf fram yfir brúðkaup og þá sem hafa aldrei fengið tækifærið. 

„Ég er hrein mey,“ sagði hin 22ja ára Dominique Sullivan við fréttamenn í gær en hún kemur fram í þáttunum. „Í fjölmiðlum fá þeir sem aldrei hafa stundað kynlíf enga umfjöllun. Við fáum ekki að vera í sviðsljósinu heldur er gert lítið úr okkur. Við getum líka skemmt okkur, en við getum líka passað upp á okkur sjálf.“

Lisa Youngerman kemur einnig fram í þáttunum en hún ákvað að bíða með að stunda kynlíf þar til hún var gift, af trúarástæðum. „Ég vil að ungar konur og ungir karlar sjái að það er raunhæfur möguleiki að bíða með kynlíf.“

Aðspurð hvernig viðbrögð foreldra hennar hafi verið við þáttunum svaraði Youngerman létt í bragði: „Ég held að öllum feðrum líki við tilhugsunina að dóttir þeirra sé ekki að stunda kynlíf.“

Markmið þáttanna er að ræða við fólk sem hefur ekki stundað kynlíf og fá það til þess að útskýra ákvörðun sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson