Mökuðu „hvítu slími“ á bíla

Kleinuhringir hafa m.a. verið notaðir til verksins.
Kleinuhringir hafa m.a. verið notaðir til verksins. www.dunkindonuts.com

Það er ýmislegt dularfullt í gangi í úthverfum Portlands í Bandaríkjunum. Í ljós hafa komið mörg skemmdarverk. Þar er þó hvorki verið að brjóta rúður eða rispa bíla heldur makað sætabrauði á þá. Meðal þess sem hefur verið gert er að setja kleinuhringi undir rúðuþurrkurnar.

Í frétt The Oregonian kemur fram að sjónarvottur hafi séð að minnsta kosti 12 bíla útataða í sætabrauði. Reyndar var ekki aðeins verið að beita sætabrauði við skemmdarverkin heldur einnig jógúrt og eggjum. 

Daginn eftir tilkynnti önnur kona lögreglunni um að bíllinn hennar hefði sex sinnum orðið fyrir sætabrauðsárás. Í eitt skipti var kleinuhringur með kanilbragði notaður til verksins. Í annað skiptið var það „brauð fyllt með hvítu slími“, eins og hún orðaði það.

Helst hefur borið á þessum skemmdarverkum í Hillsboro-hverfinu og hefur aldan staðið í sex vikur. 

Lögreglan segir að skemmdarverkin séu framin í skjóli nætur. Hún telur líklegast að börn séu að verki. Nú hefur lögreglumönnum verið fjölgað á næturvöktunum til að reyna að hafa hendur í hári sætabrauðsþrjótanna.

Lögreglumaðurinn Mike Rouches segir: „Í starfi mínu sem lögreglumaður í 25 ár hef ég aldrei rannsakað glæpi þar sem sætabrauð kemur við sögu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant