Kveikti í fyrrverandi kærustu sinni

Michael Kennedy myrti fyrrverandi kærustu sína með því að kveikja …
Michael Kennedy myrti fyrrverandi kærustu sína með því að kveikja í henni. Mynd/Jefferson County Sheriff’s Office

Hinn 48 ára gamli Michael Kennedy frá Alabama var í gær handtekinn fyrir að kveikja í kærustu sinni til þriggja ára, eftir að hún batt enda á samband þeirra með þeim afleiðingum að hún lést. Á hann að hafa gripið bensínbrúsa og hellt innihaldi hans yfir konuna og kveikt í.

Parið hafði verið að hittast í þrjú ár þegar sambandi þeirra lauk að frumkvæði konunnar. Líkaði honum það lítið og fór hann heim til sín og sótti bensínbrúsann og brunaði að heimili hennar þar sem mikið rifrildi hófst með ofannefndum afleiðingum. Konan hlaut við brunann mikil brunasár á höndum, efri líkama og fótum og í morgun, um tveimur sólarhringum eftir árásina, lést hún af sárum sínum. 

Var maðurinn handtekinn, grunaður um gróft heimilisofbeldi og tilraun til manndráps. 

Sjá frétt CBS-news

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant