Át fleiri kleinuhringi en löggan og var handtekinn

Maðurinn tróð í sig átta kleinuhringjum á tveimur mínútum.
Maðurinn tróð í sig átta kleinuhringjum á tveimur mínútum. www.dunkindonuts.com

24 ára maður sem lögreglan í North Carolina leitaði að fyrir innbrot mætti í kleinuhringjaátskeppni og sigraði sömu löggur og leituðu hans. Consumerist greinir frá þessu. 

Maðurinn rændi nokkrar matvöruverslanir í nóvember í fyrra og hafði verið eftirlýstur af lögreglu síðan. Hann mætti svo líkt og þruma úr heiðskíru lofti á góðgerðarviðburðinn Night Out, sem skipulagður er af lögreglunni og slökkviliðinu í bænum Elizabeth City. 

Á viðburðinum gátu bæjarbúar reynt sig við lögreglumenn í kleinuhringjaátskeppni, en keppnin gekk út á að borða sem flesta kleinuhringi á tveimur mínútum. Hinn grunaði tróð í sig átta hringjum á tímanum og sigraði keppnina. 

Þegar heim var komið áttuðu lögreglumennirnir hver hafði lagt þá af velli þegar sagt var frá keppninni í dagblöðum. 

„Þegar ég las fréttirnar varð ég mjög pirraður enda fannst mér hann vera að klína þessu framan í okkur. Við höfum leitað hans í marga mánuði. En ég óskaði honum samt til hamingju. Hann getur borðað mikið af kleinuhringjum. Gott hjá honum,“ sagði súr lögregluþjónn.

Maðurinn var handtekinn stuttu síðar og ákærður fyrir innbrot og eignatjón.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson