Gaf dóttur sinni bandorma

Bandormar geta lifað árum saman í þörmunum.
Bandormar geta lifað árum saman í þörmunum. Wikipedia

Móðir í Flórída ríki í Bandaríkjunum hefur nú viðurkennt að hafa látið dóttur sína borða bandorma. Það gerði hún til þess að hjálpa henni við að léttast.

Stúlkan kom á sjúkrahús með mikla kviðverki. Fyrst um sinn héldu hjúkrunarfræðingar að stúlkan væri ólétt en svo var ekki. Stúlkan fékk að bregða sér á salerni og þá kom í ljós að hún hafði verið með bandorma í þörmunum. 

The Independent greinir frá þessu í dag.

„Klósettskálin var full af bandormum,“ sagði Maricar Cabral-Osorio, ein af hjúkrunarfræðingunum sem sá um stúlkuna, í sjónvarpsþættinum  Untold Stories of the E.R.

„Þetta var ógeðslegt, hún hafði losað sig við helling af bandormum. Nokkrir voru rosalega langir og reyndu að komast úr klósettinu.“

Mál stúlkunnar vakti mikla athygli eftir að þátturinn var sýndur á sjónvarpsstöðinni Discovery.

Í þættinum kemur í ljós að móðir stúlkunnar hafi keypt bandormaegg í Mexíkó og neytt dóttur sína til þess að borða þau. Þetta gerði hún til þess að hjálpa dóttur sinni við að grennast fyrir fegurðarsamkeppni sem hún var skráð í.

„Við fórum að velta fyrir okkur hvernig í ósköpunum hún hafi nálgast þessa bandorma. Þá sáum við andlit móðurinnar verða hvítt,“ sagði Cabral-Osorio.

Að sögn Cabral-Osorio bað móðirin dóttur sína afsökunar. „Hún sagði „Fyrirgefðu, þú veist að ég gerði þetta bara til þess að gera þig aðeins grennri. Þú þurftir hjálp fyrir fegurðarsamkeppnina.“

Ekki er vitað hvort móðirin verði ákærð fyrir megrunaraðgerðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant